Skip to product information
Hamrar

Hamrar

31.900 kr
LiturBrún
Stærð
LÝSING

Peysan Hamrar hefur notið mikilla vinsælda hjá okkur enda ótrúlega klæðinleg peysa, saumuð úr mjúkri ullarblöndu. Ótrúlega kvenlegt snið sem er bundið í mittið og með víðum ermum sem eru teknar saman við úlnlið.

Efnið

Saumuð úr mjúkri ullarblöndu sem stingur ekki. Ullarblandan býr yfir þeim eiginleika ullarinnar að halda á okkur jöfnum hita. 50% ull / 50% acryl. 

Hvernig skal klæðast Hamrar

Í hliðarsaum peysunnar er lítið gat sem bandið er dregið í gegnum og síðan vafið utanum mittið.

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

KJÓLANA okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.

ULLARVÖRURNAR okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að ullarvörur verða að vera einar og sér í vélinni til þess að forðast að varan þæfist.

Mælum með mildu þvottaaefni, og ekki nota mýkingarefni eða þurrkara.

Þetta eru staðlaðar upplýsingar. Ef vörulýsing segir til um annað skal fylgja þeim.

Lagerstaða í verslun

Lagerstaða í verslun og á vefverslun er ekki allaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.

Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 vinnudagar).

Stærðatafla
Sendingamáti & skil

Bæði er hægt að sækja pöntun í verslun og fá senda. Hægt er að velja á milli þess að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða Dropp.

Lítið mál er að skila/skipta vöru sé þess óskað. Bæði er hægt að gera það póstleiðis eða í gegnum verslunina okkar.

Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskil/skipti.

Þér gæti einnig líkað við