KRÓSK by Kristín Ósk
Samfestingur
Samfestingur
Kósý samfestingur, saumaður úr efninu viscose, sem er náttúrulegt efni unnið úr trjám, og er því dásamlegt að klæðast því.
Efnið er mjög teygjanlegt, mjúkt og létt. Að innanverðu er breiður strengur sem heldur buxunum á samfestingnum á sínum stað. Auðvelt er að fara í og úr samfestingnum.
95% viscose / 5% lycra
Við bjóðum uppá buxnastyttingu gegn vægu gjaldi. Sé það þín ósk að fá buxurnar styttri skaltu bæta vörunni “Buxnastytting” í körfu og skrifa í athugasemd við pöntunina hversu mikið þú vilt að við styttum skálmarnar. ATHUGIÐ þó að ekki er hægt að skipta né skila vöru sem búið er að stytta.
Lagerstaða á vefverslun og í verslun er ekki alltaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.
Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 dagar).
Módelið er 167cm og er í stærð 1 (s/m).
Share
Collapsible content
Þvottaleiðbeiningar
Kjólana okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.
Ullarvörur okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að mjög mikilvægt er að þvo þær einar og sér í vélinni vegna þess að annars er hætta á að flíkin þæfist.
Vantar þig hjálp við að finna þína stærð?
Hér finnur þú stærðartöflu.
Sendingarmáti
Bæði er hægt að sækja pantanir í verslun og fá sent. Allar sendar pantanir frá okkur fara með Íslandspósti.
Vöruskil
Lítið mál er að skila vörum ef þess er óskað. Bæði er hægt að skila póstleiðis og í versluninni okkar. Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskilin.