Skip to product information
1 of 3

KroskbyKristinOsk

Glit - OVERTONES

Glit - OVERTONES

Verð 29.900 ISK
Verð Útsöluverð 29.900 ISK
Útsala Uppselt
Tax included.
Litur
Stærð

Kjóllinn er aðsniðinn, saumaður úr teygjanlegu efni. Hann er með tveim rykktum saumum að framan og einum að aftan. Hálsmálið er kassalaga að framan og kemur í v niður bakið.

Módelið er 167cm og í stærð 1 (s/m).

Þessi lína er unnin í samstarfi við listakonuna Jaclyn Poucel Árnason. Grafíkin í efninu er unnin úr þrem mismunandi málverkum úr myndlistaseríunni hennar Overtones. Það er mikið líf í efninu og því er skemmtilegt að sjá hvernig hver og einn kjóll fær sinn karakter, allt eftir því hvernig litirnir lenda mismunandi á kjólunum.

Hér getur þú skoðað málverk eftir Jaclyn Árnason Art.

Lagerstaða á vefverslun og í verslun er ekki alltaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.

Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 dagar). 

View full details

Collapsible content

Þvottaleiðbeiningar

Kjólana okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.

Ullarvörur okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að mjög mikilvægt er að þvo þær einar og sér í vélinni vegna þess að annars er hætta á að flíkin þæfist.

Vantar þig hjálp við að finna þína stærð?

Hér finnur þú stærðartöflu.

Sendingarmáti

Bæði er hægt að sækja pantanir í verslun og fá sent. Allar sendar pantanir frá okkur fara með Íslandspósti.

Vöruskil

Lítið mál er að skila vörum ef þess er óskað. Bæði er hægt að skila póstleiðis og í versluninni okkar. Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskilin.