KroskbyKristinOsk
Buxur - 35%
Buxur - 35%
Buxurnar eru háar í mittið, með tvöföldum streng, sem gerir þær einstaklega þæginlegar. Þær eru beinar í sniðinu. Þröngar frá mitti og niður á mitt læri og falla svo lausar niður.
Módelið er 167cm á hæð og í stærð 1.
Buxurnar eru frá klofi og niður 82cm (32”).
Við bjóðum uppá buxnastyttingu gegn vægu gjaldi. Sé það þín ósk að fá buxurnar styttri skaltu bæta vörunni “Buxnastytting” í körfu og skrifa í athugasemd við pöntunina hversu mikið þú vilt að við styttum skálmarnar. ATHUGIÐ þó að ekki er hægt að skipta né skila vöru sem búið er að stytta.
Lagerstaða á vefverslun og í verslun er ekki alltaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.
Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni.Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 dagar).
Share
Collapsible content
Þvottaleiðbeiningar
Kjólana okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.
Ullarvörur okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að mjög mikilvægt er að þvo þær einar og sér í vélinni vegna þess að annars er hætta á að flíkin þæfist.
Vantar þig hjálp við að finna þína stærð?
Hér finnur þú stærðartöflu.
Sendingarmáti
Bæði er hægt að sækja pantanir í verslun og fá sent. Allar sendar pantanir frá okkur fara með Íslandspósti.
Vöruskil
Lítið mál er að skila vörum ef þess er óskað. Bæði er hægt að skila póstleiðis og í versluninni okkar. Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskilin.