Fönn
LÝSING
Fönn er síðerma kjóll, með háu hálsmáli, fellingum á öxlum og í mitti sem gefur framstykkinu ótrúlega fallega og klæðilega hreyfingu. Hann er aðsniðinn yfir ermar og niður að mjöðmum, og með beinu pilsi sem er fullt af karakter.
Fönn er saumaður úr léttu, teygjanlegu efni svo hann er fallegur hvort sem maður vill taka hann alveg aðsniðinn eða aðeins lausari.
Stærð:
Ljóshærða módelið er 165cm á hæð og í stærð 1.
Dökkhærða módelið er 170cm á hæð og í stærð 0.
Efnið
90% polyester, 10% spandex
Lagerstaða í verslun
Lagerstaða í verslun og á vefverslun er ekki allaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.
Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 vinnudagar).
ÞVOTTALEIÐBEININGAR
KJÓLANA okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.
ULLARVÖRURNAR okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að ullarvörur verða að vera einar og sér í vélinni til þess að forðast að varan þæfist.
Mælum með mildu þvottaaefni, og ekki nota mýkingarefni eða þurrkara.
Þetta eru staðlaðar upplýsingar. Ef vörulýsing segir til um annað skal fylgja þeim.
Stærðatafla
Sendingamáti & skil
Bæði er hægt að sækja pöntun í verslun og fá senda. Hægt er að velja á milli þess að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða Dropp.
Lítið mál er að skila/skipta vöru sé þess óskað. Bæði er hægt að gera það póstleiðis eða í gegnum verslunina okkar.
Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskil/skipti.