Hlíð - Buxur
LÝSING
Þessar buxur eru saumaðar úr náttúrulega efninu viscose, sem er svo ótrúlega gott að klæðast. Þær eru háar í mittið og beinum víðum skálmum. Strengurinn er breiður svo hann liggur vel og þétt að maga.
Hugmyndin á bakvið mjúku línuna er að hanna flíkur sem eru kvenlegar, klæðilegar, og nógu þæginlegar til þess að njóta í notalegheitum heima.
- Náttúrulegt efni
- Beinar, víðar skálmar
- Teygjanlegt efni
- Háar í mittið
- Breiður og tvöfaldur strengur
Módelið er 167cm á hæð og í stærð 1.
Buxurnar eru frá klofi og niður 84cm (33”).
Sérstakar óskir um buxnalengd?
Við bjóðum uppá sérsniðna sídd á skálmum gegn vægu gjaldi. Sé það þín ósk að fá buxurnar styttri / síðari skaltu bæta vörunni Stytting / buxnalenging í körfu og skrifa í athugasemd við pöntunina hversu mikið þú vilt að við styttum / lengjum skálmarnar á þínum buxum.
Athugið þó að ekki er hægt að skipta né skila vöru sem búið er að stytta.
Efnið
95% Viscose, 5% teygja,
Lagerstaða í verslun
Lagerstaða í verslun og á vefverslun er ekki allaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.
Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 vinnudagar).
ÞVOTTALEIÐBEININGAR
KJÓLANA okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.
ULLARVÖRURNAR okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að ullarvörur verða að vera einar og sér í vélinni til þess að forðast að varan þæfist.
Mælum með mildu þvottaaefni, og ekki nota mýkingarefni eða þurrkara.
Þetta eru staðlaðar upplýsingar. Ef vörulýsing segir til um annað skal fylgja þeim.
Stærðatafla
Sendingamáti & skil
Bæði er hægt að sækja pöntun í verslun og fá senda. Hægt er að velja á milli þess að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða Dropp.
Lítið mál er að skila/skipta vöru sé þess óskað. Bæði er hægt að gera það póstleiðis eða í gegnum verslunina okkar.
Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskil/skipti.