Skip to product information
Lyng - Toppur

Lyng - Toppur

17.900 kr
LiturSvartur
Stærð
In stock
LÝSING

Þessi toppur er saumaðar úr náttúrulega efninu viscose, sem er svo ótrúlega gott að klæðast. Hann er með þröngum ermum, vafinn yfir búk og bundinn með slaufu hvar sem hentar hverjum og einum best. Skreyttur með blúndu við úlnlið og fald.

Til þess að vefja toppinn er mjórra bandið dregið í gegnum gat í hliðarsaumnum.

Hugmyndin á bakvið heimasettin er að hanna flíkur sem manni langar að fara í eftir langann dag, sem eru samt kvenleg og klæðinleg, og bjóða uppá möguleikann að klæða upp hversdags. 

Efnið: 95% Viscose, 5% teygja,

Módelið er 167cm á hæð og í stærð 1. 

Lagerstaða í verslun

Lagerstaða í verslun og á vefverslun er ekki allaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.

Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 vinnudagar).

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

KJÓLANA okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.

ULLARVÖRURNAR okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að ullarvörur verða að vera einar og sér í vélinni til þess að forðast að varan þæfist.

Mælum með mildu þvottaaefni, og ekki nota mýkingarefni eða þurrkara.

Þetta eru staðlaðar upplýsingar. Ef vörulýsing segir til um annað skal fylgja þeim.

Stærðatafla
Sendingamáti & skil

Bæði er hægt að sækja pöntun í verslun og fá senda. Hægt er að velja á milli þess að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða Dropp.

Lítið mál er að skila/skipta vöru sé þess óskað. Bæði er hægt að gera það póstleiðis eða í gegnum verslunina okkar.

Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskil/skipti.

Þér gæti einnig líkað við...