Skip to product information
Lind - pils

Lind - pils

16,900 kr
LiturKrÓsk X Aldís Petra - Brúnt mesh
Stærð
In stock
LÝSING

Lind pilsið er saumað úr teygjanlegu efni og efst í mittið er svo breið stífari teygja sem heldur því uppi, svo það er ótrúlega þægilegt að klæðast því. Það er aðsniðið efst yfir mjaðmir og víkkar svo niður. Á neðri hluta pilsins er skökk pífa sem gefur pilsinu ótrúlega fallega hreyfingu.

Bláa og brúna efnið er gegnsætt. Því eru þau fóðruð, og þar af leiðandi aðeins dýrara.

Gerðu sett úr flíkinni:

Með toppunum Lind, Strá, Klaka eða Læk.

Stærð:

Ljóshærða módelið er 165cm á hæð og í stærð 1.

Dökkhærða módelið er 170cm á hæð og í stærð 0.

Efnið

90% polyester / 10% lycra

KRÓSK x Aldís Petra

Grafíkin í kjólnum er unnin úr málverki frá Aldís Petru. 

Lagerstaða í verslun

Lagerstaða í verslun og á vefverslun er ekki allaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.

Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 vinnudagar).

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

KJÓLANA okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.

ULLARVÖRURNAR okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að ullarvörur verða að vera einar og sér í vélinni til þess að forðast að varan þæfist.

Mælum með mildu þvottaaefni, og ekki nota mýkingarefni eða þurrkara.

Þetta eru staðlaðar upplýsingar. Ef vörulýsing segir til um annað skal fylgja þeim.

Stærðatafla
Sendingamáti & skil

Bæði er hægt að sækja pöntun í verslun og fá senda. Hægt er að velja á milli þess að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða Dropp.

Lítið mál er að skila/skipta vöru sé þess óskað. Bæði er hægt að gera það póstleiðis eða í gegnum verslunina okkar.

Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskil/skipti.

Þér gæti einnig líkað við...