Skíma
LÝSING
Lind pilsið er saumað úr teygjanlegu efni og efst í mittið er svo breið stífari teygja sem heldur því uppi, svo það er ótrúlega þægilegt að klæðast því. Það er aðsniðið efst yfir mjaðmir og víkkar svo niður. Á neðri hluta pilsins er skökk pífa sem gefur pilsinu ótrúlega fallega hreyfingu.
Bláa efnið er eina efnið sem er gegnsætt. Því er það eina pilsið sem er fóðrað, og þar af leiðandi aðeins dýrara en hin pilsin.
Stærð:
Módelið á myndunum er 170 cm á hæð og í stærð 1 (s/m) í flíkinni
Efnið
90% polyester / 10% lycra
KRÓSK x Aldís Petra
Grafíkin í kjólnum er unnin úr málverki frá Aldís Petru.
Lagerstaða í verslun
Lagerstaða í verslun og á vefverslun er ekki allaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.
Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 vinnudagar).
ÞVOTTALEIÐBEININGAR
KJÓLANA okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.
ULLARVÖRURNAR okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að ullarvörur verða að vera einar og sér í vélinni til þess að forðast að varan þæfist.
Mælum með mildu þvottaaefni, og ekki nota mýkingarefni eða þurrkara.
Þetta eru staðlaðar upplýsingar. Ef vörulýsing segir til um annað skal fylgja þeim.
Stærðatafla
Sendingamáti & skil
Bæði er hægt að sækja pöntun í verslun og fá senda. Hægt er að velja á milli þess að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða Dropp.
Lítið mál er að skila/skipta vöru sé þess óskað. Bæði er hægt að gera það póstleiðis eða í gegnum verslunina okkar.
Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskil/skipti.