Skip to product information
Straumur - 30%

Straumur - 30%

Sale price  25.830 kr Regular price  36.900 kr
Stærð
LiturJaclyn Árnason Art - Bleikt
LÝSING

Kjóllinn Straumur er síðkjóll með beinu sniði en flæðandi pilsi. Ermarnar eru snúnar í sniði og með klauf við úlnlið sem er hugsuð til þess að hafa kost á að gera skartið sýnilegra. 

Með kjólnum fylgir belti sem er til dæmis hægt að hnýta um mittið, vefja um hálsinn eða hvernig sem þér dettur í hug.

Ótrúlega tímalaust snið sem hægt er að klæða upp eða niður.

KRÓSK X Jaclyn Árnason Art samstarfsefni - Engir tveir kjólar eins, þó þeir séu allir mjög svipaðir.

Módelið er 170cm og í stærð 1 (small/medium)

Efnið

95% polyester, 5% teygja

 

ÞVOTTALEIÐBEININGAR

KJÓLANA okkar má setja í vél á 30 gráður, eina og sér, á röngunni.

ULLARVÖRURNAR okkar má þvo í vél á ullarprógrammi. Athugið þó að ullarvörur verða að vera einar og sér í vélinni til þess að forðast að varan þæfist.

Mælum með mildu þvottaaefni, og ekki nota mýkingarefni eða þurrkara.

Þetta eru staðlaðar upplýsingar. Ef vörulýsing segir til um annað skal fylgja þeim.

Lagerstaða í verslun

Lagerstaða í verslun og á vefverslun er ekki allaf sú sama. Endilega hafðu samband ef þig langar til þess að gera þér ferð til okkar eftir ákveðinni vöru.

Vara sem er versluð á vefverslun er í sumum tilfellum ekki fulltilbúin til afhendingar, en þá er hún í vinnslu hjá okkur á saumastofunni. Eftir að greitt hefur verið fyrir vöruna setjum við hana í forgang til að koma henni til þín eins fljótt og auðið er (1-3 vinnudagar).

Stærðatafla
Sendingamáti & skil

Bæði er hægt að sækja pöntun í verslun og fá senda. Hægt er að velja á milli þess að fá pöntunina senda með Íslandspósti eða Dropp.

Lítið mál er að skila/skipta vöru sé þess óskað. Bæði er hægt að gera það póstleiðis eða í gegnum verslunina okkar.

Með öllum pöntunum fylgir blað með upplýsingum sem leiða þig í gegnum vöruskil/skipti.

Þér gæti einnig líkað við